top of page
Winter landscape, power lines on a snowy

Þjónusta

Fyrirtækið sérhæfir sig í greiningu og lausnum sem snúa að orkuskiptum. Við höfum mikla reynslu af gerð hermi- og spálíkana til þess að skoða möguleg áhrif orkuskipta á raforkukerfi í framtíðinni. 

​

Fyrirtækið hefur þróað öflugan hugbúnað sem tekur inn notkunargögn úr raforkumælum og kortleggur áhrif á dreifikerfi, spáir fyrir um áhrif ýmissa þátta og auðgar gögn til að nota í frekari greiningar. Einnig sinnir fyrirtækið almennri ráðgjöf á sviði orkuskipta ásamt verkefnastjórnun og innleiðingu hugbúnaðar hjá fyrirtækjum.

Greiningarhugbúnaður

Fyrirtækið býður upp á hugbúnað sem hjálpar dreifiveitum að skilja kerfin sín betur og spá fyrir um  hvaða áhrif orkuskiptin hafa. 

Ráðgjöf

Fyrirtækið býr yfir mikilli sérþekkingu á öllum sviðum orkuskipta. 

Hugbúnaðarþróun

Þróun á nýjum hugbúnaði sérsniðinn að áskorunum fyrirtækja eða snjallar greiningar á gögnum. 

Verkefnastýring

Verkefnastýring tæknilegra verkefna, hvort sem það eru rannsóknarverkefni eða úrbótaverkefni á sviði orkuskipta.

Hafðu samband!

Ef að við getum orðið þér að liði endilega hafðu samband!

Takk fyrir að hafa samband!

bottom of page